Kópavogsbær semur við Eldhúsið Okkar
Greinar 07. nóvember 2025 Eftir Admin

Kópavogsbær semur við Eldhúsið Okkar

Kópavogsbær semur við Eldhúsið Okkar

Eldhúsið Okkar er ungt fyrirtæki sem leggur áherslu á faglega þjónustu þar sem gæði, hollusta og fjölbreytni eru í fyrirrúmi. Markmiðið er að bjóða upp á valkosti sem henta öllum hópum, hvort sem um er að ræða daglega máltíð eða veitingar á fundum.

Samningurinn felur í sér að Eldhúsið Okkar annist hádegismat og fundarveitingar fyrir starfsfólk Kópavogsbæjar. 

„Við erum mjög ánægð með að hefja þetta samstarf,“ segir Sigurður Karlsson, yfirmaður húsumsjónar hjá Kópavogsbæ. „Það skiptir okkur miklu máli að starfsfólk Kópavogsbæjar hafi aðgang að næringarríkum og fjölbreyttum hádegismat, og við teljum Eldhúsið Okkar vera rétta samstarfsaðilann til að tryggja það.“

Daglegan rekstur Eldhússins Okkar annast Börkur Óðinn Bjarnason og Brynja Ósk Bjarnadóttir, en eigendurnir eru fjórir talsins.

„Við þökkum Kópavogsbæ traustið og hlökkum til að leggja okkar af mörkum,“ segir Börkur Óðinn Bjarnason, meðstofnandi Eldhússins Okkar. „Þessi samningur er mikilvægt skref fyrir okkur og markar upphaf að frekara samstarfi við fyrirtæki og stofnanir sem vilja bjóða starfsfólki sínu upp á gæðamáltíðir og faglegar fundarveitingar.“



Eigendur Eldhúsins Okkar - Frá vinstri Hjalti Snær Heiðarsson, Brynja Ósk Bjarnadóttir, Guna Mezule og Börkur Óðinn Bjarnason